Áfangar
VAL:UTN 103 Upplýsingatækni
Þessi áfangi er ætlaður þeim sem vilja bæta við tölvuþekkingu sína og er góður undirbúningur fyrir aðra áfanga.  Nemendur læra að nota MOODLE kennsluforritið og farið er í grunnatriði tölvuvinnslu og uppbyggingu stýrikerfa (MAC og PC) og vistun skjala. Farið er í notkun leitarvéla, höfundarrétt og heimildanotkun. Kennd eru undirstöðuatriði í ritvinnslu og í notkun glæruforrita.
Forrit: Moodle, Word, Power Point, vefskoðunarforrit ( t.d. Fireworks, og Internet Explorer) og póstforrit (t.d. Outlook Express, Mail).

LIM 103

Menningarsamhengi og saga
Hópvinnuáfangi þar sem nemendur skoða alla þætti listalífsins, myndlist, handverk, hönnun, tónlist, dans og leiklist, hvern í samhengi við annan og við félagslegt og heimspekilegt umhverfi í gegnum tíðina.

SJL 203 Myndbygging og formfræði
Í áfanganum er áhersla lögð á forsendur myndbyggingar og í því að beita litum á markvissan hátt. Þeir kanna einnig eðli og merkingu línuspils og hvernig merkingarsamhengi á milli forma breytist eftir afstöðu þeirra og mismunandi stærðarhlutföllum. Forrit: Illustrator

MHL 103

 

Vefhönnun: Inngangur að margmiðlun
Í áfanganum læra nemendur að búa til gagnvirkt margmiðlunarkerfi. Efniviður vinnunnar er nánasta samfélag nemenda sem þeir greina út frá sínum eigin forsendum. Unnin er heimasíða og vefur að eigin vali. Einnig er kennd undirstöðuatriði myndvinnslu fyrir vef.
Forrit: Dreamweaver, Photoshop og Fireworks.

MHS 103

Ljósmynda- og prentsaga
Í áfanganum kynnast nemendur sögu grafískra miðla, allt frá fyrstu ritun til ljósmynda og prentunar í samtíma sínum. Samfélagsleg áhrif grafískra miðla verða rannsóknarefni áfangans.

MHL 203 Ljósmyndun
Í áfanganum læra nemendur að taka ljósmyndir, vinna þær í tölvu og ganga frá þeim til birtingar. Unnið verður bæði með filmuvélar og stafrænar myndavélar. Mikil áhersla er lögð á meðvitund nemenda um inntak og uppbyggingu ljósmynda og ljósmyndaraða.
Forrit: Dreamweaver, Photoshop og Fireworks.
MHL 213 Grafísk hönnun
Í áfanganum læra nemendur reglur um textasetningu, gera tilraunir með fjölbreytta uppsetningu á texta og kynnast reglum um notkun mynda í skipulagi síðu.
Forrit: Photoshop og Illustrator.
MHL 313 Kvikmyndun
Í áfanganum læra nemendur að beita aðferðum kvikmyndunar til að tjá hugmyndir sínar. Þeir læra allar helstu aðferðir við framleiðslu kvikmyndar, frá hugmyndavinnu til klippingar og lokafrágangs.
Forrit: Avid Free.
MHL 333 Tónlist og hljóðsetning
Í áfanganum læra nemendur að vinna með tónlist í margmiðlunarumhverfi. Þeir kynnast forsendum upptökutækni og stafrænnar vinnslu á tónlist og ólíkum tónlistartegundum.

MHS 304

 

 

Miðlunarfræði, rannsóknir og tölfræði
Í áfanganum rannsaka nemendur fjölmiðlaástand samtíma síns undir leiðsögn kennara. Þeir fjalla um fjölmiðlaheiminn út frá fjölbreyttum sjónarhornum, út frá t.d. félagsfræði, siðfræði, táknfræði, stjórnmálafræði og sálfræði, til að reyna að komast að því hvernig samtímaumhverfi þeirra virkar, bæði á yfirborðinu og á bak við tjöldin. Forrit: Dreamweaver, Power Piont og Excel.

FJÖ 103 Inngangur að fjölmiðlafræði
Áfanginn er inngangur og kynning á fjölmiðlafræði. Fjallað verður um þrjú form nútímafjölmiðlunar: blöð og tímarit, ljósvakamiðla og fjölmiðlun innan netheima.
Kannað verður hvað einkennir boðskipti innan þeirra og þau borin saman, bæði í sögulegu og fræðilegu samhengi.

TÖT 203

Gagnavinnsla
Nemendur tileinka sér undirstöðuþætti sem varða tölvuvinnslu og nái að tengja saman fagbókleg og verkleg atriði. Nemendur verði færir um að nota verklegar mælinganiðurstöður við lausn verkefna og öðlist færni við notkun mælitækja og fái yfirsýn yfir samsetningu og virkni helstu jaðarrása sem notaðar eru.
Forrit: Excel

FJÖ 313 Umhverfi og forsendur fjölmiðla / tölfræði
Í áfanganum er fjallað er um félagsleg og stjórnmálaleg áhrif fjölmiðla. Fjallað er um fjölmiðla og eignarhald þeirra, sem eitt af valdakerfum í þjóðfélaginu og hvaða ytri og innri þættir hafa áhrif á fréttamat þeirra og umfjöllunarefni.
Sérnám / Bókasafnstækni

BST 105


Safnafræði
Í áfanganum er fjallað um sögu og þróun bókasafna, skjalasafna og annarra upplýsingamiðstöðva á Íslandi. Nemendur kynnast lögum, reglugerðum og stefnu stjórnvalda.

BST 115

Skipulag safnkosts
Í áfanganum er fjallað um mismunandi tegundir safngagna og helstu aðferðir og hjálpargögn við gagnaval. Áhersla er lögð á þá hugmyndafræði sem efnisgreining heimilda byggist á.

BST 125

Upplýsingatækni
Í áfanganum er fjallað um hagnýtingu tækjakosts og tölvubúnaðar á bókasöfnum, skjalasöfnum og öðrum upplýsingamiðstöðvum. Nýjungar í upplýsingatækni og þróun tölvu og upplýsingatækni rakin.

BST 135

 

Upplýsingaleiðir
Í áfanganum eru helstu leiðir til öflunar og miðlunar upplýsinga kannaðar. Uppbygging og skipulag upplýsingaþjónustu er kynnt, siðferðilegar forsendur og
mismunandi gildi upplýsinga.