|

Við upplifum liti ýmist heita eða
kalda. Litahiti er líka mælanlegur.

Hér sjáum
við heitustu og köldustu litina. Appelsínugult
er heitastur og blágrænn er kaldastur. Síðan
dregur úr kulda / hita þegar þeir nálgast
pólana. Hitahiti er bæði mælanlegur og tilfinningalegur.

Rauður,
appelsínugulur og gulur = heitir.
Allir
litatónar sem eru rauðir og gulrauðir eru heitir.
Heitir litir eru uppörvandi og kraftmiklir. Ef þeir
eru mildir eru þeir þægilegir og notalegir.
Ef þeir eru sterkir (óblandaðir) geta þeir
verið æsandi og ögrandi. Heitir litir eru rautt,
rauð-appelsínugult, appelsínugult og gul-rautt.
Grænblár, blágrænn
og blár =
kaldir.
Kaldir
litir eru sterkir, traustir og rólegir. Oft notaðir þar
sem á að kalla fram ímynd styrkleika og trausts.
Einnig hreinleika. Kalt minnir okkur á ís og snjó.
Tilraunir hafa líka sýnt að fólki finnst
hlýrra í herbergi sem er málað í
hlýjum lit heldur en í herbergi með köldum
lit.
Ef við skoðum
litahringinn þá sjáum við að gult er
ljósasti liturinn og fjólublár dekkstur, og
við höfum til beggja hliða heitustu og köldustu
litina.
Heitum- köldum
eiginleika getum við skipt niður í marga aðra
flokka t.d.:
skuggi - sólskin
gegnsætt - ógegnsætt
róandi- örvandi
þunnur - þéttur
loftkenndur - jarðbundinn
langt í burtu -nálægt
léttur - þungur
blautur - þurr
heitt- kalt
Hughrif og tjáning
á heitu og köldu. Í landslagi sýnast
hlutir sem eru langt í burtu kaldari í lit vegna þess
að loftið er á milli. Loftið gefur bláma.
Heitur - kaldur
litamunur er mjög mikilvægur í fjarvídd.
Heitir litir sýnast nær.
|