|
Litastjarna
Johannesar Itten

Hér
sjáum við litastjörnuna þar sem liturinn
er blandaður hvítu eða svörtu.
Við
lýsum liti með hvítu en dekkjum liti með
svörtu.
Ljóst-
dökkt / dagur- nótt.
Svart- hvítt ....þar er andstæðan sterkust.
Svart flauel er sennilega svartasta svart og steinefnið
barít hvítasta hvítt. það er aðeins
einn svartasti svartur og einn hvítasti hvítur
en
óendanlega margir gráir á á milli
sem mynda samfelldan skala.
Nautral grár
er afskiptalaus og líflaus. Hann er þögull og
verður auðveldlega fyrir á áhrifum af öðrum
litum. Hann á á lífið og karakterinn
undir nágrönunum komið. Stundum er hann eins og
vampíra sem sýgur sig fastan við aðra liti.
Þetta er einmitt það sem listamenn notfæra
sér. þrátt fyrir litleysið og lífleysið
er grár gífurlega mikilvægur í allri
listsköpun.
Grátt getum við búið til með því
að blanda saman svörtu og hvítu og með því
að blanda andstæðulitunum saman.
Grátónaskalinn
|