FRJÁLST OG ÓKEYPIS
Á netinu geta kennarar og nemendur halað niður halað niður ókeypis en löglegum hugbúnaði sem að flestu leyti getur komið í stað hefðbundinna forrita á sviði ritvinnslu, töflureikninga og glærugerðar. Ýmis vandamál hafa komið upp á námsvettvanginum vegna þess að kennarar og nemendur eru að nota ólíkan hugbúnað á þessu sviði. Sem dæmi má nefna að kennarar geta oft ekki opnað skjöl frá nemendum og öfugt þar sem hugbúnaður þeirra er ekki samhæfður. Lausn á þessum vanda er að styðjast við Libre Office - hugbúnaðinn sem er bæði ókeypis, frjáls og að fullu löglegur. Í Libre Office er einnig hægt að vista skjöl sem opnast í öðrum forritum, t.d. Microsoft Office. Hægt er að nálgast þennan hugbúnað á slóðinni: http://www.libreoffice.org/download
Tekið skal fram að þó notandi hali niður og setji upp Open Office þá truflar það á engan hátt notkun annarra forrita, s.s. Microsoft Office. Um er að ræða afar gagnlega viðbót sem leysir mikinn samskiptavanda í netsamskiptum með skjöl.
Varðandi val á vafra í tengslum við nám og kennslu á Námsvettvangi BHS er bent á að heppilegast er að nota Firefox. Hægt er að niðurhala forritið á slóðinni: http://www.getfirefox.com Í þessu sambandi skal þess getið að vafrar á borð við Explorer virka oft á tíðum ekki í sérhæfðum aðgerðum á námsvettvanginum - oftast nær felst lausnin í notkun á Firefox-vafranum. |