Byrjið á því að opna fyrir ítarstillingar með því að ýta á hnappinn (ofarlega til hægri). Þá lítur glugginn út eins og til vinstri.
Stillingarnar ykkar ættu að vera eins og sýnt er hér til hliðar. Athugið þó að í glugganum "Sjálfvirk áskrift að umræðu" er hugsanlega betra að stilla á "Nei, ég vil ekki sjálfvirka áskrift að umræðum".
Og í glugga er hægt að skrifa upplýsingar um ykkur, t.d. hvaða nám þið stundið.
Neðst í þessum glugga er svo möguleiki á að setja inn mynd af ykkur. Myndi birtist þá í umræðum og í "þátttakendalistum", t.d. í áföngum á borð við Fatlanir. Nánari útskýringar um vistun mynda eru hér fyrir neðan. Athugið að með því að klikka á "Íítarstillingar" um mið bik gluggans opnast möguleikar á að setja inn ýmsar aukaupplýsingar, t.d. símanúmer, slóð á heimasíðu o.fl. Gott væri ef nemdendur gæfu upp símanúmer sín.
Þegar þið hafið sett inn viðeigandi notendaskilgreiningar er komið að því að loka glugganum og vista stillingarnar. Það er gert með því að ýta á "Uppfæra notendaskilgreiningu". |