|
Hér til vinstri má sjá slóðina (IP-tölu) inn á KVÍ á internetinu. Aðgangur að KVÍ er einnig á forsíðu Framhaldsskólans á Húsavík.
Slóðin (urlið) er forsenda þess að komast inn á kennsluvettvanginn KVÍ. |
|
Gott er að merkja síðuna (slóðin/url) inn í Bookmark á þeim tölvum sem notendur vinna oftast á. Það er gert með því að ýta á "Bookmark" (Favorite í sumum vöfrum)og velja síðan Add to Bookmark eða Bokkmark this Page). Það getur verið misjafnlega orðað í mismunandi vöfrum (forritið sem notað er inn á internetið). Skýra má "Bookmark" komi ekki skiljanlegt nafn upp. Rétt er að skýra þessa slóð KVÍ. Næst þegar tölvan er ræst er hægt að fara beint í "Bookmark" og komast þannig án tafa inn á KVÍ. |
|
Hafi notandi ekki tengst KVÍ áður verður hann að sækja um aðgang að kerfinu. Það er gert með því að ýta á Login ofarlega í hægra horni. Birtist þá glugginn sem er hér fyrir neðan. |
|
Þegar þessi gluggi hefur opnast er ýtt á "New Account). Þar með er verið að biðja um umsóknareyðublað inn á KVÍ. Umsóknarblaðið er sýnt hér á næstu mynd. |
|
Nú þarf umsækjandi að velja sér notendanafn (Username). Rétt er að miða við sex bókstafi og/eða tölustafi. Ekki má nota íslenska stafi (t.d. þ.æ.í,ð og ó) eða bil. Greinarmunur er gerður á litlum og stórum stöfum. Notendanafnið gæti t.d. verið dora eða pall. Sömu reglur gilda um lykilorðið. Mikilvægt er að velja notendanafn og lykilorð sem auðvelt er að muna því án þeirra kemst notandi ekki inn á KVÍ. Mikilvægt er að skrifa niður þessi aðgangsorð á minnisblað og geyma vel. Hér þarf umsækjandi líka að gefa upp póstfang (í tvígang í örygggisskyni) og fullt nafn. Nafnið má skrifa með hefðbundnum hætti, t.d. íslenskum stöfum. Þá þarf að skrifa borg (t.d. Húsavík) og velja land. Að þessu loknu ýtir umsækjandi á "Create my new account". Þar með fer umsóknin til úrvinnslu hjá kerfisstjóra K VÍ.
Nánast strax og umsókn hefur verið sent til kerfisstjóra KVÍ fær umsækjandi sent e-mail þar sem hann er beðinn um að ýta á staðfestingarslóð. Þegar það hefur verið gert er viðkomandi kominn með gilt notendanafn og lykilorð að KVÍ. |
|
Þegar notandi er kominn með notendanafn og lykilorð getur hann tengst KVÍ með því að skrá viðkomandi orð í viðkomandi reiti. Að því loknu er ýtt á "Login". Opnast þá glugginn hér fyrir neðan. |
|
Hér er notandinn kominn inn fyrir "útidyrnar" á kennsluvettvanginum KVÍ. Héðan kemst notandinn í alla áfanga inn á KVÍ. Sumir áfangar eru þó læstir og þarf nemandinn þá að fá sérstakan aðgangslykil hjá viðkomandi kennara til að komast þar inn. Það á t.d. við um áfangann Fatlanir FTL 103.
Srkániingarlyklar að einstökum áföngum eru til þess að allir komist ekki inn í hvaða áfanga sem er. Kennsla í áföngum í KVÍ er eins og kennsla í kennslustofu og alls ekki heppilegt að hver sem er geti gengið þar inn og út.
Þegar klikkt er á læsta áfanga birtist nýr gluggi þar sem skrá á inn skráningarlykil sem kennarinn afhendir nemendum sínum. Einungis þarf að skrá þann lykil einu sinni því þar með hefur viðkomandi nemandi skráð sig inn í áfangan. Opnast þá glugginn hér fyrir neðan. |
|
Á myndinni hér til vinstri má sjá hefðbundna uppsetningu á námsáfanga inn á KVÍ. Í efsta dálkinum fyrir miðju er að finna ýmsar grundvallarupplýsingar um áfangann, s.s. kennsluáæltun, verkefnaáætlun, umræðuvettvang o.fl.
Þar fyrir neðan er dagskrá áfangans sýnd viku fyrir viku út önnina. í hverri viku er að finna innlagnarefni, ýtarefni, lesefni og verkefni sem ætlast er til að nemandinn leysi.
Velkomin í dreifnám .... |