banner
ÞÁTTAKA Í UMRÆÐUM
mynd1

Í áföngum á borð við FTL 103 fara fram vikulegar umræðu. Í hópaskiptum áföngum geta einungis skráðir þátttakendu í viðkomandi hópi tekið þátt í umræðunum.

Til að komast í umræðutíma þarf nemandii að ýta á viðkomandi "vettvang" sbr. hér til vinstri. Opnast þá gluggi á borð við þann sem hér er fyrir neðan.

mynd2

Á myndinni hér til vinstri ýtir nemandinn á þann umræðutíma sem við á hverju sinni, þ.e.a.s. þann sem er með viðeigandi dagsetningu. Kennari opnar yfirleitt umræðuna snemma dags til að nemendur geti kynnt sér upphafsspurninguna en sjálfar umræðurnar hefjast á auglýstum tíma.

Mikilvægt r að allir þátttakendur mæti á réttum tíma til umræðna og taki virkan þátt í þeim allan tímann. Þurfi einhver að yfirgefa umræðuna áður en tíma líkur er rétt að láta aðra í umræðunum vita af því. Mikilvægt er að vera hnitmiðaður og orðvar í umræðunum og fylgjast vel með því sem fram fer.

mynd3

Eins og áður segir hefjast umræðurnar með upphafsinnleggi kennara. Áður en þið hefjið umræðu skuluð þið stilla glugga ofarlega á síðunni í "Birta svör sem einfalda lista, nýjasta fyrst". Þá birtast alltaf nýjustu innleggin næst á eftir upphafsinnleggi kennarans.

Til að taka þátt í umræðunni les maður öll innleggin sem koma inn og svarar svo nýjasta innlegginu, ekki upphafsinnleggi kennara heldur nýjasta svarinu. Það gerir maður með því að íta á "Svara". Þá opnast ritunargluggi eins og sá sem er hér fyrir neðan.

mynd5

Í ritunarreitin skrifið þið innlegg ykkar í umræðuna. Mikilvægt er að vera hnitmiðaður í orðavali og ætla sér ekki að skrifa of mikið í einu. Betra er að koma oftar inn í umræðuna. Í umræðum sem þessum er afar mikilvægt að tilgreina skoðun sína, - ekki skrifa t.d. Sammála. Engin leið er þá að átta sig á hverju viðkomandi er sammála. Betra væri að skrifa: Ég er sammála Kristjáni í því að þetta er svona eða hinsvegin". Á verkfæraslá efst á ritunarglugga er hægt að velja um stærð á texta og jafnvel setja inn broskarla o.fl. Í hefðbundum umræðum er þetta þó lítið notað.

Eins er afar mikilvægt að fara sparlega í persónulega dóma eða tilgreina persónurekjanlegar sögur. Ísland er lítið og oft einhver nálægur sem umræðan getur virkað illa á. Höfum í huga að varúðar er þörf í návist sálar.

Þegar notandi hefur skrifað það svar eða innlegg sem hann vill að birtist í umræðunni þá ýtir hann á "Innlegg í umræðu". Opnast þá gluggi í stutta stund sem segir hversu langan tíma þið hafið til að breyta innlegginu ykkar. Boðið er upp á valkostinn "Halda áfram" sem þið ítið á . Innlegg ykkar hefur þá farið inn í umræðuna.

mynd4

Afar mikilvægt er í umræðum að íta reglulega á "Refresh" takkan efst á tölvuskjánum hjá ykkur. Það tryggir það að tölvan nái í nýjustu útgáfuna af umræðustrengnum hverju sinni. Ef þið hafið t.d. ekki sent sjálf innlegg í umræðuna í 5 mínútur getið þið ekki séð það nýjasta í umræðunni nema með því að íta á þennan takka.

"Refresh" takkinn hefur ólíkt útlit í mismunandi vöfrum sem þið notið til að fara inn á internetið. Yfirleitt er hann þó í formi pílna eða örfa sem benda í öfugar áttir eða í hring.

Þetta er sem sagt bara auðvelt og skemmtilegt.

Gangi ykkur vel.