banner
VERKEFNASKIL
mynd1

Í áfanga á borð við FATLANIR 103 er ætlast til verkefna skila hjá nemendum. Í þeim áfanga er ætlast til að nemendur vinni verkefnin á hefðbundin hátt í Word-skjöl á tölvunum sínum. Miðað er við að um sé að ræða eitt verkefni á viku. Mikilvægt er því að vista skjölin sín skv. einhverju skipulagi í eigin tölvum notenda.

Ferlið gengur þannig fyrir sig að nemandi fer inn í viðkomandi áfanga og skoðar það sem kennari hefur lagt inn í viðkomandi viku, sbr. mynd hér til vinstri. Nemandinn opnar viðkomandi verkefni og birtist þá gluggi á borð við þann sem er hér fyrir neðan.

mynd2

Í glugganum sem opnast eru verkfyrirmælin. Tilgreint er hvað ætlast er til af nemandanum. Fram kemur hvenær umræður eiga sér stað um verkefnið og hver skilafresturinn er. Sé verkefni ekki skilað á tilsettum tíma lækkar einkunin kerfisbundið dag frá degi.

Mikilvægt er að nemandi komi fram með spurningar í viðkomandi umræðutíma sé eitthvað óljóst varðandi verkefnið.

Þegar nemandi hefur kynnt sér verkfyrirmælin fer hann í vinnslu verkefnisins. Nemandinn þarf ekki að vera skráður inn á námsvettvanginn (KVÍ) meðan hann vinnur verkefnið heldur vinnur það með hefðbundnum hætti inn á tölvuna sína. En þegar nemandinn hefur lokið við verkefnið þá sækir hann það og vistar inn inn í glugga fyrir neðan verkefnafyrirmælin. Sjá nánar með skýringum með næstu skýrkingarmynd.

mynd4

Til að skila verkefni sem vistað hefur verið á tölvu nemanda er farið í glugga neðst á verkefnasíðunni. Þar er ítt á "Browse".

mynd5

Þegar ítt hefur veirð á "Browse" opnast gluggi sem vísar inn í tölvu nemandans. Þar leitar nemandinn uppi verkefnaúrlausn sína. Þegar hann hefur fundið rétt skjal þá ítir hann á "Open".

mynd6

Við það að íta á "Open" kemur fram slóð inn á verkefnið. Þegar hún er komin fram þá er ítt á "Sækja þessa skrá". Þar með vistast hún inn á námsvettvanginn KVÍ og er aðgengileg kennaranum í sérstakri möppu sem hann hefur fyrir hvern nemanda. Þar getur kennarinn skoðað og farið yfir verkefnið. Í kjölfarið leggur hann mat á verkefnið með umsögn og einkunnagjöf. Þegar hann skrifar umsögnina og gefur einkun þá birtist hún viðkomandi nemanda næst þegar hann fer inn á námsvettanginn KVÍ.

Eins og áður segir vistar nemandinn verkefnið inn á eigin tölvu meðan hann vinnur það. Í því sambandi er mikilvægt að hann útbúi sér sérstaka möppu fyrir verkefni áfangans, t.d. möppuna FATLANIR. Þar geymir hann öll skjöl áfangans. Og þegar hann vistar verkefnin þar þá er þeim gefið heiti sem vísar til þess hvað þau hafa að geyma, t.d. FTLverk1, FTLverk2, FTLverk3 o.s.frv. Slíkar nafngiftir auðvelda nemandanum að hafa yfirsýn yfir verkefnavinnuna og dregur úr líkum á að hann skili vitlausu skjali þegar að verkefnaskilum kemur.
mynd8

Engin ein forskrift ertil fyrir uppsetningu nemendaverkefna. Heppilegt er hins vegar að setja í haus á skjali (efst) nafn nemandans, heiti áfanga, skóla og númer verkefnis. Þá er heppilegt að hafa dagsetningu upp í horni.

Með fyrirsögn er nauðsynlegt að auðkenna verkefnið, t.d. með heiti verkefnis.

Mikilvægt er að aðgreina svör við spurningum með greinarskilum og annaðhvort millifyrirsögnum, sem vísa þá til þess sem eftirfarandi efnisgrein fjallar um, eða einfaldlega með því að skrifa spurningar kennarans upp.

Í lokin er svo mikilvægt að rita nafn nemandns, - kvitta fyrir skrifin.

Gangi ykkur vel.