![]() |
|
BREYTINGAR Á PERSÓNULEGUM STILLINGUM (PRÓFÍL) |
|
L E I Ð B E I N I N G A R |
|
![]() |
Skref 1 Mikilvægt er að svokallaður "prófíll" notenda á námsvettvangi BHS (dagskóli / dreifnám) sé réttur. Huga þarf því að persónulegum stillingum. Til að komast inn í þessar stillingar þarf notandi að vera kominn með notendanafn og lykilorð. Viðkomandi þarf að vera búinn að skrá sig inn. Þá getur hann klikkt á nafnið sitt sbr. skýringarmynd hér til vinstri. Eins getur notandi valið "Notendastilling" í stýriglugga sem oftast er til vinstri á skjá. Þá opnast gluggi á borð við þann sem er hér fyrir neðan. |
![]() |
Skref 2 Hér klikkar notandi á "Breyta stillingum notanda". Opnast þá glugggi á borð við þann sem er hér fyrir neðan. |
![]() |
Skref 3 Byrjið á því að opna fyrir ítarstillingar með því að ýta á hnappinn (ofarlega til hægri). Þá lítur glugginn út eins og til vinstri. Stillingarnar ykkar ættu að vera eins og sýnt er hér til hliðar. Athugið þó að í glugganum "Sjálfvirk áskrift að umræðu" er hugsanlega betra að stilla á "Nei, ég vil ekki sjálfvirka áskrift að umræðum". Og í glugga er hægt að skrifa upplýsingar um ykkur, t.d. hvaða nám þið stundið. Neðst í þessum glugga er svo möguleiki á að setja inn mynd af ykkur. Myndi birtist þá í umræðum og í "þátttakendalistum", t.d. í áföngum á borð við Fatlanir. Nánari útskýringar um vistun mynda eru hér fyrir neðan. Athugið að með því að klikka á "Íítarstillingar" um mið bik gluggans opnast möguleikar á að setja inn ýmsar aukaupplýsingar, t.d. símanúmer, slóð á heimasíðu o.fl. Gott væri ef nemdendur gæfu upp símanúmer sín. Þegar þið hafið sett inn viðeigandi notendaskilgreiningar er komið að því að loka glugganum og vista stillingarnar. Það er gert með því að ýta á "Uppfæra stillingar notenda". |
![]() |
|
![]() |
Skref 4 Hér er til vinstri er neðri hluti valmyndar vegna persónulegra stillinga. |
![]() |
Skref 5 Til að setja inn mynd í valglugganum þarf viðkomandi notandi að vera með andlitsmynd af sér á eigin tölvu. Myndin má ekki vera stór né þung í vinnslu. Hún er sótt í tölvu notendans með því að ýta á "Browse" og þegar hún er fundin þá er ýtt á "Open". Þar með dettur hún inn í ramman á síðunni. |
![]() |
Skref 6 Munið að þegar þið hafið sett inn allar upplýsingar og stillt notendaskilgreininguna ykkar (persónulegu stillingarnar) þá er ýtt á "Uppfæra stillingar notenda" og þar með hafa stillingarnar festst inn á Námsvettvangi BHS (dagskóli eða dreifnám. |
GANGI ÞÉR VEL |
|